Atburðir 3f 2006

Rachel Ager í heimsókn hjá 3f – 23.–26. október 2006

Dagana 23. til 26. október 2006 var stödd hér á landi Rachel Ager í boði 3f og Félags Leikskólakennara. Rachel hélt tvö námskeið fyrir leikskólakennara á meðan á dvöl hennar stóð og kynnti sér nokkra leikskóla hér á landi. Það voru Fjóla Þorvaldsdóttir sérkennsluráðgjafi í Kópavogi og Hanna Dóra Leifsdóttir sérkennslustjóri í Garðabæ sem höfðu frumkvæði að komu hennar hingað til lands.


Nánar um heimsókn hennar hér.
Ráðstefna 3f 2006 – Það er leikur að læra. Samræða allra skólastiga

Ráðstefnan var haldin  29.–30. september í KHÍ.  3f stóð fyrir eftirfarandi tveimur málstofum:
  • Út fyrir ramma ráðstefnunnar - Helstu málefni og uppbygging fagsamfélags á sviði UT – Sólveig Jakobsdóttir stýrði
  • Opinn hugbúnaður í skólastarfi – Salvör Gissurardóttir stýrði með þátttöku Sigurðar Fjalars Jónssonar og Elínar Jónu Traustadóttur

Sjá nánar hér.