Ráðstefna 3f og Háskólans í Reykjavík

Fjarnám og fjarkennsla

Haldin í Verzlunarskóla Íslands
föstudaginn 17. október 2008

Glærur frá ráðstefnunni , upptökur og fleira má finna á ráðstefnuvefnum.
Árleg ráðstefna 3f var haldin föstudaginn 17. október  2008 í samstarfi við Háskólann í  Reykjavík.
Viðfangsefni ráðstefnunnar var fjarnám og fjarkennsla. 

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var virtur sérfræðingur á sviði fjarmenntunar, 
Dr. Terry  Anderson.
Anderson er prófessor við háskólann í Athabasca í Kanada og  stundar rannsóknir á fjarnámi og fjarkennslu.
Hann er m.a. þekktur fyrir  bók  sína
Theory and Practice of  Online learning.
Picture

Dr. Terry Anderson

Auk Terry Anderson héldu erindi Sigurlaug Kristmundsdóttir kennari   með áratuga reynslu af fjarkennslu og Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari sem hefur undanfarin ár komið á fót nýjum framhaldsskóla   sem er um þessar mundir í miklum landvinningum á Vestfjörðum.

Síðastur á  dagskrá var Carl Svensson sem sagði frá því hvernig fjarkennsla fer fram hjá frændum okkar Svíum.
 
Með dyggri aðstoð Háskólans í Reykjavík, Verzlunarskólans og menntamálaráðuneytisins gat 3f boðið frítt á þessa ráðstefnu.

Að mati undirbúningsnefndar og þátttakenda á ráðstefnu 3f og HR  föstudaginn 17. október sl. þótti ráðstefnan takast vel.
Flutt voru mjög  áhugaverð erindi og kann undirbúningsnefndin fyrirlesurum bestu þakkir  fyrir þeirra framlag. 

3f þakkar Verzlunarskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og  menntamálaráðuneytinu fyrir myndarlegan stuðning við ráðstefnuna. 

Heildarfjöldi þátttakenda var hátt í níutíu. Fyrir hádegi á ráðstefnudaginn voru haldnir tveir fundir þar sem fulltrúum háskóla og framhaldsskóla gafst tækifæri á að spjalla við fyrirlesarana.

Þema umræðnanna var: Hvað virkar í fjarkennslu?

Fundirnir þóttu takast með miklum ágætum og var haft á orði að svona umræður þyrftu að eiga sér stað oftar.
Dagskrá