Sumarnámskeið 3f og SEF 2024
​Fimmtudagur 6. og föstudagur 7. júní 
​

Sköpun – Sjálfvirkni – Samvinna
Picture
Image description





Dagskrá
​Sumarnámskeið 3f og SEF fyrir framhaldsskólakennara 2024
Námskeiðið er þverfaglegt og hentar kennurum óháð námsgrein. ​
  • 6. júní – Versló:  Vefhluti námskeiðsins.
  • 7. júní – Versló og Moodle:  Fyrirlestur og verklegur hluti. Verkefni unnin.
Kennarar á námskeiðinu: Sigurður Fjalar Jónsson kennari í FB og markaðsstjóri hjá IÐUNNI fræðslusetri og Hjörvar Ingi Haraldsson kennari í FB.

​Microsoft 365 er vettvangur fyrir sköpun og samskipti; fyrir samstarf og hýsingu og miðlun hverskyns efnis. MS er svíta sérhæfðra verkfæra sem geta staðið ein og sér, líkt og Word, PowerPoint og Excel, en njóta sín best þegar þau eru nýtt í samstarfi.

Á námskeiðinu verður kafað djúpt í Microsoft 365 og möguleika þess til sköpunar, sjálfvirkni og samvinnu. Sýnt verður hvernig svítan getur nýst á framsækinn hátt í skólastarfi og kynnt til sögunnar verkfæri og aðgerðir sem eru sjaldnast nýtt. Má þar nefna t.d. Microsoft lists, Engage, Stream, Planner, Loop o.fl. Einnig verður gervigreindin í Microsoft 365 kynnt og Viva verkfærin.

Brögð og brellur
Microsoft Edge
Inngangur að Microsoft Lists
Sjálfvirkni með Power Automate
Gervigreind