Ráðstefna 3f 
Haldin í KHÍ  29.–30. september 2006

Það er leikur að læra – Samræða allra skólastiga
Picture
Á ráðstefnunni Það er leikur að læra – Samræða allra skólastiga  29.–30. septemer 2006 stóð 3f – Félag um upplýsingatækni og menntun fyrir tveimur málstofum.

Annarri málstofunni stýrði Sólveig Jakobsdóttir og bar hún heitið:
Út fyrir ramma ráðstefnunnar – Helstu málefni og uppbygging fagsamfélags á sviði UT.

Hinni málstofunni stýrði Salvör Gissurardóttir með þátttöku Sigurðar Fjalars Jónssonar og Elínar Jónu Traustadóttur.
Þar var fjallað um Opinn hugbúnað í skólastarfi.

3f ákvað í framhaldi af þessum málstofum að  bjóða áhugafólki að prófa
Moodle og halda umræðum þar áfram um mikilvæg málefni sem brenna á fólki í UT-geiranum.