Margmiðlun og gervigreind Skráning á námskeiðið
Sumarnámskeið 3f og SEF fyrir framhaldsskólakennara var haldið fimmtudaginn 4. júní og föstudaginn 5. júní 2026 í Verzlunarskóla Íslands. Eftirfylgni verður svo í sérstökum tölvupósti.
Á námskeiðinu var hagnýt vinnustofa fyrir kennara sem vilja efla sig í starfi hvað varðar efnissköpun með aðstoð gervigreindar þar sem unnið var með raunhæf verkefni sem tengjast kennslu og námsstuðningi. Áhersla var lögð á fagmennsku, skilvirkni, skapandi lausnir og ábyrga notkun tækninnar. Kennarar/fyrirlesarar fjölluðu um ofangreint efni í víðu samhengi og þátttakendur unnu fjölbreytt efni, s.s. texta, myndir, myndskeið, tónlist og tal. Einnig var fjallað um hvernig hægt er að nýta margvísleg gögn við þróun á kennsluefni og aðlaga að markmiðum, aldri og fjölbreyttum þörfum nemenda. Þátttakendur unnu með efni frá kennurum námskeiðsins ásamt eigin viðfangsefni.
Kennarar á námskeiðinu voru Sigurður Fjalar Jónsson kennari í FB og og Hjörvar Ingi Haraldsson kennari í FB.
Námskeiðið var þverfaglegt og hentar öllum kennurum sem hafa áhuga á að nýta kraft gervigreindar í menntun.
Athugið að námskeiðið er framhaldsskólakennurum að kostnaðarlausu.