Sumarnámskeið 3f, félags um upplýsingatækni og menntun í samstarfi við SEF   

Vefsíða: Stafrænt kennsluefni og miðlun

Námskeiðið er ætlað framhaldsskólakennurum þeim að kostnaðarlausu og kennurum á öðrum skólastigum ef pláss leyfir. 
Það verður haldið í Verzlunarskóla Íslands 9.–10. júní nk. kl. 09:00–16:00.

Kynntur verður fjölbreyttur hugbúnaður fyrir upptökur á stafrænu kennsluefni og miðlun ásamt vistun á neti.

Þar sem mikil áhersla er nú lögð á að nemendur hafi aðgang að stafrænu námsefni á vef er brýnt að kennarar fái í hendur verkfæri eða tól til að vinna slíkt efni og gagnlegar leiðbeiningar um hvernig hægt er að setja það saman og vista á vef/neti.

Fyrri dagur námskeiðsins verður í formi fyrirlestra og leiðbeininga um notkun fjölbreytts hugbúnaðar og lausna í gerð stafræns efnis, samsetningar og vistunar á neti/vef.

Seinni daginn vinna þátttakendur raunhæf verkefni undir leiðsögn fyrirlesara og kennara. 

Einnig kynning ýmissa kennara á eigin stafrænu efni. 


Eftirfylgni með þátttakendum verður síðan í Moodle fram á haustið.

Kennari: S. Fjalar Jónsson

Stjórn 3f