Markmið og megintilgangur

Vefurinn er ætlaður þeim sem þurfa að skrá heimildir. 


Mörg skráningarkerfi heimilda eru til en hér eru eingöngu leiðbeiningarnar fyrir APA-kerfið og Chicago-kerfið með íslenskri aðlögun. 

Á vefnum eru einnig leiðbeiningar um hvernig á að vitna og vísa í heimildir í texta í meginmáli og setja þær upp í heimildaskrá.
Að auki eru leiðbeiningar við uppsetnigu ritgerða/ritunarverkefna.