Atburðir 3f 2007
Ráðstefna 3f 2007 – Vörður vísa veginn
3f stóð fyrir ráðstefnu í Verzlunarskóla Ísalnds 2. nóvember 2007 í samvinnu við Hákskólann í Reykjavík og menntamálaráðuneytið. Flutt voru mörg áhugaverð erindi og kann undirbúningsnefndin fyrirlesurum bestu þakkir fyrir þeirra framlag sem og samstarfsaðilum fyrir myndarlegan stuðning. Glærur frá ráðstefnunni og fleira má finna á ráðstefnuvefnum: 3f-radstefna.wikispaces.com |
Námskeið í Office 2007 – september 2007
3f hélt námskeið í notkun Office 2007 í tölvuveri Verzlunarskóla Íslands föstudagana 14. september og 21. september 2007 kl.13.30–16.30 báða dagana. Fullbókað var á námskeiðið. Kennarar voru Jóhanna Geirsdóttir, tölvukennari við Fjölbrautarskólann í Breiðholti og Sólveig Friðriksdóttir, kennari við Verzlunarskóla Íslands. |
Samræður allra skólastiga – 29.– 30. september 2007
Laugardaginn 15. september 2007 var Software Freedom day. Alþjóðlegur dagur þar sem áhugafólk um opinn hugbúnað leitast við að vekja athygli á kostum slíks búnaðar. Ári áður, eða 16. september 2006, var Félag um opinn hugbúnað í skólastarfi á Íslandi stofnað, félagsskapurinn ber nafnið Ísfoss.
Í tengslum við ráðstefnuna Samræður milli skólastiga, sem haldin var á Akureyri nokkru síðar eða 29.–30. september 2006, tók 3F að sér að skipuleggja tvær málstofur og var önnur þeirra netmálstofa þar sem alfarið var notast við opinn hugbúnað á Interetinu.
Salvör Gissurardóttir lektor í HÍ stýrði málstofunni
S. Fjalar Jónsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Elín Jóna, kennari á Flúðum, voru með innlegg.

Leikskólakennarahittingur – 5. september 2007
Miðvikudaginn 5. september 2007 kl. 17 hittust leikskólakennarar, sem lokið hafa framhaldsnámi í tölvu- og upplýsingatækni, í kaffihúsi Perlunnar. Tíu kennarar mættu til fundarins og tókst hann mjög vel.
Umræðuefnið var:

- Staðan í tölvumálum leikskóla, hvað er jákvætt í gangi hjá sveitarfélögunum.
- Stöður umsjónarmanna í upplýsingatækni í leikskólum?
Grunnskólarnir eru komnir með þessar stöður af hverju ekki leikskólanir? - Þróunarverkefni í tölvu- og upplýsingatækni hvað er að gerast í þeim málum?
- Möguleikar á styrkjum til þess að efla tölvu- og upplýsingatækni í leikskólum.
- Á fundinn mætti Guðmundur frá alþjóðaskrifstofu og kynnti eTwinning.
Sumarnámskeið 3f og EHÍ – Wiki í námi og kennslu
3f hélt samvinnu við Endurmenntun HÍ sumarnámskeiðið 2007 Wiki í námi og kennslu. Námskeiðið var ætlað kennurum í upplýsingatækni, tungumálakennurum, kennurum samfélagsgreina og fleiri greina. Hentar kennurum á öllum skólastigum. Tuttugu og þrír þátttakendur voru á námskeiðinu.
Kennari: Salvör Gissurardóttir lektor í KHÍ.
Markmið:
Að kynna kennurum ný verkfæri og ný vinnubrögð við samvinnuskrif á vef og vefsmíði og efla færni þeirra til að byggja upp með samkennurum og nemendum opna þekkingarbrunna í wiki-kerfum. Sjá nánar á vefslóðinni http://wiki.khi.is.
Efni:
Kynntar verða rannsóknir og hugmyndir á notkun wiki-kerfa í námi og kennslu. Fjallað verður um alþjóðleg wikipedia-verkefni, sérstaklega verkefnin wikipedia, wikibooks, wikiversity og wikimedia commons. Þátttakendur læra á wiki-kerfi (mediawiki) og gera áætlun um hvernig þeir ætla að byggja upp wiki í sínu starfi. Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrum og verklegri vinnu í tölvuveri í tengslum við efni námskeiðsins. Þátttakendur vinna með áætlunina á starfsvettvangi sínum og byrja uppbyggingu á þekkingarbrunni í wiki.
Salvör hefur útbúið Wiki-kennsluvef sem vert er að skoða.
Hægt er að skoða nokkur myndbönd um Wiki á YouTub, Wikis in Plain English , Social Networking in Plain English , Intro to Class Wiki with Wikispaces 1 o.fl. Þátttaka var mjög góð og var almenn ánægja með námskeiðið.