Hlaðvarp (Podcast) Sumarnámskeið 3f og SEF í júní 2020
Sumarnámskeið 3f og SEF fyrir framhaldsskólakennara verður mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. júní 2020.
Að þessu sinni verður það haldið á netinu.
Á því verður kynning á fyrirbærinu hlaðvarp (Podcast) og þjálfun í að setja saman eigið hlaðvarp með þar til gerðum vél- og hugbúnaði.
Að þessu sinni verður það haldið á netinu.
Á því verður kynning á fyrirbærinu hlaðvarp (Podcast) og þjálfun í að setja saman eigið hlaðvarp með þar til gerðum vél- og hugbúnaði.
Einnig verður fjallað um hlaðvörp sem gætu reynst áhugaverð fyrir kennara og sýnt hvernig hægt er að nýta þau sem öflugt verkfæri í bæði námi og kennslu.
Kennarar á námskeiðinu verða Sigurður Fjalar Jónsson, kennari í FB, og Anna Marsibil Clausen, dagskrárgerðarmaður RÚV.
Námskeiðið er ætlað framhaldsskólakennurum og þeim að kostnaðarlausu.
Ekki verða fjöldatakmarkanir eins og oft hefur verið.
Hægt er að skrá sig hér til 4. júní.

Dagskrá |
Hlaðvörp (Podcast) eru þættir sem gefnir eru út á netinu. Þau hafa svipaða uppbyggingu og útvarpsþættir en eru ekki sendir út beint. Hlaðvörp eru vanalega gefin út sem hljóðskrár en geta líka innihaldið myndbönd.
|
Anna Marsibil Clausen
Anna Marsibil Clausen er með B.A. gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og lauk meistaranámi við UC Berkeley Graduate School of Journalism árið 2018 þar sem hún hlaut verðlaun fyrir lokaverkefni sitt um hvernig það er að bíða dauðans á dauðadeild Kaliforníuríkis. Hún hefur skrifað fyrir Monitor, mbl.is, Iceland Review og Kjarnann, auk þess sem verk hennar hafa birst hjá NPR og Pulitzer Center for Crisis Reporting. Anna hóf störf á Rás 1 í janúar 2019 og stýrir nú menningarþættinum Lestinni ásamt því að vinna að ýmsum sérþáttum og þáttaröðum.
Fyrirlestrar
|
Ólafur Jónsson
Ólafur Jónsson er áhugamaður um sölu- og markaðsmál og hefur haldið úti hlaðvarpi um það viðfangsefni síðastliðin þrjú ár. Hér fer hann yfir eigin verkferla við gerð hlaðvarps, allt frá undirbúningi að hýsingu og markaðssetningu. Hann lýkur svo sínum hluta á nokkrum hagnýtum hollráðum og framtíðarpælingum.
Fyrirlestrar
Gögn
Hlaðvörp sem Jóns mælir með
|
Verklegi þátturinn
Hljóðupptökur
|
Hljóðvinnsla með Audacity
|
Tónar
Hér eru nokkrir staðir á vefnum þar sem hægt er að sækja tónlist og stef.
|