3f – Atburðir 2011
Úrslit í landskeppni eTwinning 2010–2011
15 verkefni tóku þátt í landskeppni eTwinning, áætlun ESB um rafrænt skólasamstarf, fyrir bestu verkefni síðasta árs í flokkum leik-, grunn- og framhaldsskóla. Úrslitin voru kynnt á afmælishátíð Menntaáætlunar Evrópusambandsins í HÍ, Menntavísindasviði föstudaginn 9. desember. Dómnefnd var skipuð Fjólu Þorvaldsdóttur frá 3f, Guðbergi K Jónssyni frá eTwinning og Torfa Hjartarsyni frá HÍ. Verðlaunin voru vöruúttekt frá Tölvulistanum að verðmæti 150.000 kr. Verðlaun hlutu: Hofstaðaskóli fyrir verkefnið Give me a hug! í flokki leik- og grunnskóla. Verzlunarskóli Íslands fyrir verkefnið How´s life over there? Y tú ¿Cómo vives? í flokki framhaldsskóla. |
Skemmtikvöld 3f – Stafræn verkfæri í skólastarfi
Skemmtikvöld 3f var haldið 22. nóvember kl. 19:30 í Verzlunarskóla Íslands. Á dagskrá var yfirferð 100 vinsælustu stafrænu verkfæranna í íslensku skólastarfi. Listinn var unnin upp úr könnun sem 3f lagði fyrir íslenska kennara: Stafræn verkfæri í skólastarfi. Könnunin var aðgengileg á vef 3f í nokkrar vikur. Rétt tæplega 160 kennarar tóku þátt í könnuninni um hvaða hugbúnað, vélbúnað eða vefi þeir nýttu mest í sínu starfi. Sjá skjákynningu hér: Könnunin byggir á sambærilegu verkefni sem Jane Hart, stofnandi The Centre for Learning & Performance Technologies, hefur staðið fyrir undanfarin 5 ár. Hér má finna upplýsingar um 100 helstu verkfæri sem kennarar í USA nota. |
Slideshare
|
Kvöldstund í vefsíðugerð – Ýmis vefumsjónarkerfi
Mánudagskvöldið 17. október kl. 19:30-21:30 var vinnufundur í vefsíðugerð í Álftamýrarskóla. Fundurinn var með svipuðum hætti og Joomaklúbburinn sem félagið hefur verið með sl. tvo vetur. Núna var aðeins breytt um takt og voru allir velkomnir þó svo þeir vinni í öðrum vefumsjónarkerfum. |
Jónas F. Steinsson, vefhönnuður og Joomlasérfræðingur hjá Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar, mætti og miðlaði fróðleik til fundarmanna, svaraði spurningum og ræddi vefsíðumál.
Það gilti um þetta kvöld sem önnur að maður er manns gaman.

Menntakvika – Málþing Menntavísindasviðs HÍ
Þann 30. september var haldin hin árlega ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands undir heitinu Menntakvika: rannsóknir, nýbreytni og þróun. Megintilgangur ráðstefnunnar er að skapa mennta- og uppeldisstéttum vettvang til að kynnast nýbreytni í rannsókna og þróunarstarfi sem unnið er í skólum landsins og innan háskólaumhverfisins.
Nokkrar málstofur tengdust upplýsingatækni og voru þrjár þeirra eru á vegum RANNUM en sú rannsóknarstofa er í samstarfi við 3f. Sjá nánar á vef málþingsins: http://vefsetur.hi.is/menntakvika/dagskra_2011.

Moodle-dagurinn
Moodle-dagurinn var haldinn 23. september kl. 13:15–17:00 í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og var samstarfsverkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og 3f. Sjá nánar dagskrá dagsins hér : Moodle-dagurinn |
Upplýsingatækninámskeið fyrir leikskólakennara
Dagana 5.–6. september hélt 3f, í samvinnu við FL, Félag leikskólakennara, námskeið í upplýsingatækni fyrir leikskólakennara. Námskeiðið var haldið í Verzlunarskóla Íslands kl.16:00–20:00 báða daganna.
Kennarar á námskeiðinu voru:
Jóhanna Geirsdóttir, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
Sólveig Friðriksdóttir, kennari við Verzlunarskóla Íslands.
Aðsókn var mjög góð og fullbókað á námskeiðið. Frítt var á námskeiðið.

Sumarnámskeið á vegum 3f og SEF – Moodle-námskeið
Dagana 9.–10. júní var haldið námskeið í Moodle fyrir framhaldsskólakennara.
Námskeiðið var haldið í Verzlunarskóla Íslands. Kennarar á námskeiðinu voru:
S. Fjalar Jónsson og Jóhanna Gerisdóttir, kennarar við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Þorbjörg Garðarsdóttir, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Fullbókað var á námskeiðið.

Aðalfundur 3f 2011
Aðalfundur 3f var haldinn 30. maí 2011 í HÍ við Bolholt kl. 17. Sjá nánar undir Aðalfundir.

Samráðsfundur um upplýsingatækni
Þriðjudaginn 9. maí var haldinn var samráðsfundur ýmissa aðila sem koma að upplýsingatækni í skólastarfi. Fundurinn var haldinn í Verzlunarskóla Íslands og var frábært hvað margir aðilar höfðu áhuga á að mæta til skrafs og ráðgerða um UT í skólastarfi.

Upplýsingatækni í spænskukennslu – Ida Semey
12. apríl hélt Ida Semey erindi um reynslu sína á notkun upplýsingatækni til samskipta í spænskukennslu.
Erindið var haldið á vegum 3f og RannUM, Rannsóknarstofu um upplýsingatækni og menntum.

Kvöldstund í vefsmíðum – Joomla-klúbbur
11. apríl kl. 19:30 var félagsfundur í Joomla-klúbbnum. Fundurinn var haldinn í tölvustofu Melaskóla.

Ráðstefna 3f 2011 – Framtíðin er núna – Tækni fyrir alla
Föstudaginn 11. mars 2011 var haldin ráðstefna 3f og Keilis, Mistöð vísinda, fræða og atvinnulífs að Ásbrú á Miðnesheiði.
Ráðstefnan bar yfirheitið: Framtíðin er núna – Tækni fyrir alla.
Að þessu sinni var meginviðfangsefnið upplýsingatækni nútímans. Fjallað var um þær miklu breytingar sem eru í upplýsingatækni í námi og kennslu. Lögð var áhersla á hagnýt atriði er nýttust kennurum á öllum skólastigum. Kennurum gafst tækifæri til að prófa hluti, ræða saman og skiptast á hugmyndum. Ráðstefnan var samvinnuverkefni 3f og Keilis, Mistöð vísinda og fræða.
Allar nánari upplýsingar eru á vef ráðstefnunnar.

BETT kvöld
26. janúar var haldið Bett-kvöld fyrir félagsmenn 3f. Farið var yfir það sem félagsmönnum þótti áhugavert á Bett Show, tölvu- og kennslugagnasýningunni, sem haldin var í Olimpyuhöllinni í London 12.–15. janúar. Góð kvöldstund og mikið spjallað. |