Mín framtíð
Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum, Mín framtíð, verður haldið í Laugardagshöll dagana 16.–18. mars 2023.
Eins og þrisvar áður verður keppt m.a. í vefþróun og leikjaforritun. Keppendur koma frá nokkrum framhaldsskólum en 3f hefur séð um keppnina í þessum tveimur greinum.
Fræðsluaðilar munu kynna fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi og boðið verður upp á ýmsa viðburði, kynningar og ekki síst að prófa, fikta, snerta og smakka. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að kynnast námi á framhaldsskólastigi á einum stað.
Nánari upplýsingar er að finna á síðunni Mín framtíð | Nám og störf (namogstorf.is)